Þjónusta
Pallamálun og viðhald – láttu pallinn líta út eins og nýjan!
Ertu með pall eða skjólvegg sem hefur séð betri daga? Við sérhæfum okkur í faglegri pallamálun og viðhaldi sem verndar viðinn og gefur honum nýtt líf.
Við tökum að okkur bæði minni og stærri verkefni og málum bæði palla og skjólveggi, hvort sem er heima hjá þér eða í sumarbústaðnum. Með réttum efnum og vandaðri vinnu tryggjum við fallega og endingargóða niðurstöðu sem þolir íslenskt veður.
Við mælum með pallaolíu frá fyrirtækjum eins og; Flugger, Sérefni, Slippfélagið, Málning, Húsasmiðjan og Byko.
Reglulegt viðhald lengir líftíma pallsins og sparar þér kostnað til lengri tíma. Við sjáum um allt ferlið – frá hreinsun og undirbúningi til málunar og frágangs.