Gefðu pallinum nýtt líf með faglegri þjónustu
Pallurinn þinn er stór hluti af heimilinu eða sumarbústaðnum – staður þar sem þú nýtur sumarsins og góðra stunda. Með réttri umhirðu getur hann haldið sér fallegum og endingargóðum í mörg ár.
Við bjóðum upp á faglega pallamálun og viðhald palla og skjólgirðinga sem verndar viðinn gegn íslensku veðri. Við vinnum vandlega og notum bestu efni fáanleg ( Flugger, Sérefni, Slippfélagið ) og tryggjum að yfirborðið verði bæði fallegt og sterkt.
Hvort sem verkefnið er lítið eða stórt tökum við það að okkur af sama metnaði. Við sjáum um allt ferlið – hreinsun, slípun, meðhöndlun og lokafrágang – svo þú þurfir ekki að hafa áhyggjur af neinu.
Með reglulegu viðhaldi heldur pallurinn sér betur og þú sparar til lengri tíma.
Við bjóðum líka upp á Viðhaldsþjónustu sem heitir „Viðhald í Áskrift“ og þannig tryggir þú að við komum td. annað hvert ár eða árlega og skoðum pallinn saman og metum hvort það þurfi að laga eitthvað eða endurmála.
Hafðu samband í dag og fáðu frítt verðmat – við hjálpum þér að gera pallinn kláran fyrir næsta sumar. Við málum bæði palla og skjólveggi.
Við höfum yfir 25 ára reynslu í smíði og viðhaldi palla og skjólveggja.
Í gegnum árin höfum við unnið að fjölda verkefna – allt frá nýsmíði til viðhalds og málunar – og þekkjum vel hvað þarf til að ná endingargóðri og fallegri niðurstöðu við íslenskar aðstæður.
Þessi víðtæka reynsla þýðir að við skiljum ekki bara hvernig á að mála pall – heldur hvernig hann er byggður upp, hvernig viðurinn hagar sér og hvað þarf til að verja hann til lengri tíma. Það skilar sér í betri vinnubrögðum og meiri gæðum fyrir þig.
Við leggjum áherslu á:
- Sanngjarnt verð
- Vönduð vinnubrögð
- Áreiðanleika og þægileg samskipti
- Rétt efnisval fyrir íslenskt veðurfar
Markmið okkar er einfalt: að skila verki sem við erum stolt af og þú getur notið í mörg ár.
Veldu reynslu, gæði og fagmennsku – við sjáum um að pallurinn þinn líti vel út og endist.
> Nýjir pallar þurfa líka viðarvörn og best er að bera strax viðarvörn á nýja palla og nýja skjólveggi <
Pallamálun Íslands er í eigu Sivana ehf
- Kt. 561115-0870
- Verkstjóri: Jón Trausti Snorrason
- GSM: 821-3790
- [email protected]
